Samband Íslenskra Harmonikuunnenda


Go to content

Skilmálar

Spjallborð

Skilmálar á spjallsvæði SIHU.



1. Skilmálar þessir gilda fyrir alla notkun á spjallsvæði Sambands íslenskra harmonikuunnenda, www.harmonika.is/spjall

2. Skilmálarnir geta breyst án fyrirvara ef þörf þykir.

3. Brot á skilmálum þessum getur valdið tafarlausri brottvikningu af vefsvæði félagsins.

4. Notendur skulu gefa upp rétt nafn við innskráningu og við skráningu á spjallsvæði. Skráningum sem ekki uppfylla þetta skilyrði verður tafarlaust eytt.

5. Óheimilt er að nota aðgang annarra. Þar með talið er óheimilt að lána öðrum aðgangsorð sitt, reyna að komast yfir aðgangs- og lykilorð annarra eða nota á annan hátt gögn sem tilheyra öðrum.

6. Notendum er skylt að hafa notkun í samræmi við góða siði um umgengnisreglur sem almennt eru viðurkenndar á Internetinu. Ærumeiðingar, tilhæfulausar ásakanir og árásir á aðra notendur spjallsins eru ekki liðnar. Stjórnendur spjallsins og stjórnendur www.harmonika.is meta hverju sinni hvort eyða skuli út þráðum notenda eða banna notendur.

7. Notendum skal vera ljóst að þeir bera sjálfir persónulega ábyrgð á öllu sem þeir skrifa eða senda á vefinn. Þeir skulu því haga notkun sinni á vefnum með þeim hætti að ekki sé brotið á friðhelgi persónu né einkalífi annarra. Vefstjóri mun fjarlægja slík skrif án nokkurs fyrirvara.

8. Óheimilt er að nota upplýsingar af vefsíðunni eða afrita nokkuð sem þar er og láta það í hendur á óviðkomandi.

9. Notkun spjallsins er á ábyrgð notenda sjálfra.


10. Fjölföldun og dreifing efnisins er ekki leyfileg nema að fengnu leyfi vefstjóra

website counter

Back to content | Back to main menu